Fyrstu myndir frá mótinu okkar

Hverjir eru bestir ? Er rétt að byrja setja inn myndir frá mótinu okkar, þetta á eftir að taka smá tíma því að mikið er til af myndum frá öllu þessu fjöri. Krakkarnir komu snemma í ár og  tilhlökkunin skein úr hverju andliti.

Minnispunktar fyrir foreldra

IMG 6173 Samkvæmt veðurspánni verður einhver rigning um helgina. Því eins gott að hafa Regngalla og stígvél,gúmmískó og nóg af sokkum með sér. Hlý föt fyrir kvöldvökuna við varðeldinn. Við förum í sund, því þarf að hafa sundföt og handklæði með sér. Náttföt og 2-3 nærföt.

 

 Gaman væri ef börnin kæmu með leynifélagsbolinn, buff-skupluna og hálsmenið sem þau fengu í IMG 8635 fyrra. 

Þau munu fá uppfærðar reglur og heiðurskjal til að setja í leynifélagsmöppuna sem þau fengu í fyrra.

 

 


Dagskrá Leynifélagsins Gullborgar 2010

IMG 6077

 Imprað verður á mikilvægi  þess að vera saman og standa saman, eiga góðar samræður, sýna sanngirni,  þolinmæði og hjálpsemi. Gaman að láta krakkana taka þátt í sem mestu, líka hversdagsverkunum; ná í timbur, aðstoða við matargerð annað slagið, taka ákvarðanir, móta stefnu leynifélagsins o.fl.þ.h.

Föstudagur  13.ágúst

 

·        Krakkarnir mæta fyrir setningu sem byrjar kl. 14:00.

Gengið frá farangri í svefnskála. Hver og einn áminntur um mikilvægi þess að hjálpast að.

·        Boðið verður uppá ferskt ávaxtahlaðborð að hætti hússins . Dagskrá kynnt og börnin boðin velkomin. Létt spjall og frjálsir útileikir á meðan börnin kynnast hvert öðru upp á nýtt.

·        Höldum í garð Þorsteins Erlings og skoðum listaverk Nínu Sæmunds. Þar fá krakkarnir Leynifélagshúfu. Þar verða einnig hellisskoðun, leikir og allskonar fjör. Borðum dýrindis kræsingar í nesti úti í náttúrunni.

·        Pizzugerð! Hver og einn býr til sína eigin snilldarpizzu. Indíana stefnir á að gera köflótta pizzu… hvað með hina?

·        Strax  að loknum kvöldverði að hjálpast allir að við að ganga frá eftir matinn…þá er sest við fundarborðið.

 

·        Aðalfundur Leynifélagsins árið 2010

Ýmis málefni rædd, reglur leynifélagsins endurskoðaðar og betrumbættar. Sagt frá skjalinu sem okkur barst, það gæti kannski verið um annan fjársjóð að ræða ?????????? Getum við kannski fundið þennan fjársjóð ? Létt spjall og hlustað á vangaveltur barnanna um hvað gæti verið hægt að lesa út úr þessu  skjali, hvort það haldi það sé möguleiki á við finnum eitthvað.

·        Listakvöld:  Málning og penslar dregnir fram, nú er um að gera að vera skapandi!

·        Ró, háttað, þvegiðog tannburstað sig. Hvert barn fær plastpoka fyrir óhreinu fötin sín sem þau eiga sjálf að ganga frá í töskur sínar. Ljós slökkt í Svefnskála leynifélagsins Gullborgar og kveikt á kertum. Sögustund fyrir svefninn.

IMG 8602

 

Laugardagur 14.ágúst

 

·        Hollur og góður Morgunmatur

 

·        Hressandi morgunleikfimi, blanda af brjáluðu eróbikki, trylltum dans og gamaldags heilsusamlegum æfingum. Indíana mælir með að vera alls ekki smart!

 

·        Sund! Við keyrum og göngum í frábæra sundlaug. Tökum með okkur smá snarl og könnum fallegt umhverfið.

·        Hádegismatur, nýveiddur fiskur frá Auðunn. Allir hjálpast við að að ganga frá.

·        Göngutúr, farið verður á gúmmíbát niður læk og athugað hvort hægt sé að tína ber í nánasta umhverfi.

·        Komið til baka, frjáls stund, krakkarnir leika sér eða slappa af.

·        Grillaðir risahamborgarar, farið yfir ævintýri kvöldsins í góðu spjalli. Allir hjálpast við að ganga frá.

·        Allir hjálpast að til að finna eldivið fyrir kvöldvökuna.

·        Klæðum okkur í hlý föt og undirbúum okkur fyrir varðeld. Sykurpúðar grillaðir.Sest við bálið og sungið.

·        Ró, háttað, þvegið og tannburstað sig. Ljós slökkt í Svefnskála leynifélagsins Gullborgar Kveikt á kertum Sögustund fyrir svefninn.

 

IMG 8774

Sunnudagur 15.ágúst

 

·        Hollur morgunmatur

·        Opinber Leynifélagsfundur númer tvö. Fjársjóðsleitin rædd, sagan lesin í heild. Lögð áhersla á samvinnu !

·        Allir græja sig upp fyrir leitina og reynt er að klóra sig út úr byrjunarvísbendingunum. Fjársjóðsleitin hefst!

·        Ef fjársjóðurinn finnst þarf að skipta góssinu!

·        Hádegismatur, gómsæt humarsúpa frá Grími frænda.

·        Farangurinn tekinn saman.

·        Kveðjustund, ísveisla og afhending á heiðurskjali

IMG 8741

 

 


Árlegur leynifundur Gullborgar hefst brátt

Góðan daginn kæru leynifélagar.....

Núna líður að okkar árlega leynifundi.    Þetta er eins og venjulega, Fyrst Þjóðhátíðin í eyjum, svo Fiskidagurinn Mikli á Dalvík. Að  þessum hátíðum loknum er Hátíð Leynifélagsins Gullborgar.Sem er kannski mikilvægust af þessum þremur, (allavega fyrir okkur sem eru í félaginuTounge) Undirbúnigur er hafinn hjá skipuleggjendum, sem að hlakkar mikið til að sjá ykkur öll. Eins og þið kannski munið, hafði Mundi Skögultönn skrifað einhver skilaboð til okkar að kannski hefði hann falið einhvern fjársjóð á fleiri stöðum.... Kannski finnum við einhverjar vísbendingar frá honum, ef við leggjum allt okkar vit í að lesa út úr vísbendingunum sem hann skildi eftir árið 1907. Hver veit ? Ég er nú viss um að við getum skemmt okkur saman þó að við finnum ekki allan fjársjóðinn sem hann hefur dreift hér víðsvegar um hlíðina. 

Hlakka mjög mikið til að sjá ykkur elsku Krakkarnir mínir

Kær kveðja

Kata frænka


Minnispunktar fyrir foreldra vegna klæðnaðar meðferðis

Regngalla- stígvél – náttföt - hlý föt - Sundföt- – handklæði.

Vinsamlegast látið börnin hafa meðferðis mikið af sokkum

og nærfatnaði.

Kannski verður vatnstríð,  því er gott að vera við öllu búinn

Dagskrá Leynifélagsins Gullborgar 2009

Föstudagur 14. ágúst

 

·        Krakkarnir mæta um hádegi og Börnin boðin velkomin.Ganga frá farangri í svefnskála. Hver og einn áminntur um mikilvægi þess að hjálpast að.

 

·        Boðið verður uppá ferskt ávaxtahlaðborð að hætti hússins . Dagskrá kynnt,Sagt frá Nýrri fundarog gestabók félagsins. Létt spjall og frjálsir útileikir á meðan börnin kynnast hvert öðru upp á nýtt.

 

·        Skúffukaka, banananbrauð og fleira góðgæti sem Kata bakar.

 

·        Tekið með sér nesti og farið að Bleiksárgljúfri, sullað í vatninu, vaðið .Róið að fallega fossinum með einn í einu. Plöntuflóra skoðuð, blóm týnd, upp, við þurfum að finna út hvað þau heita.,kannski hnýttir kransar. Pressum blómin sem við týndum á milli blaðsíðna þykkra bóka Kötu.

 

·        Kvöldmaturinn okkar verður Pizza sem við búum til eftir okkkar höfði. Hver og einn setur á sína á pizzu það sem honum/henni finnst best.

 

·        Strax  að loknu kvöldverði að hjálpast allir að, við að ganga frá eftir matinn…þá er sest við fundarborðið.

 

1. Opinberi fundur Leynifélagsins árið 2009, dagskrá kynnt og ýmis málefni rædd . Reglur leynifélagsins ræddar og breytingar  á þeim sem þau vilja sjá.

Sagt frá skjalinu sem okkur barst, um það gæti kannski verið um annan fjársjóð að ræða ?????????? Getum við kannski fundið þennan fjársjóð ?

 

·        Listakvöld:  Hálsmen með logo’I Leynifélagsins dregin fram, (Frosti frændi útbjó)  Þau  þarf að pússa með sandpappír og laga aðeins til svo að við getum haft þau um hálsinn. Létt spjall og hlustað á vangaveltur barnanna um hvað gæti verið hægt að lesa út úr þessu  skjali, hvort það haldi það sé möguleiki á við finnum eitthvað.

 

·        Ró, háttað, þvegiðog tannburstað sig. Hvert barn fær plastpoka fyrir óhreinu fötin sín sem þau eiga sjálf að ganga frá í töskur sínar. Ljós slökkt í Svefnskála leynifélagsins Gullborgar Kveikt á kertum Sögustund fyrir svefninn.

 

 

 Laugardagur

 

·        Hollur og góður Morgunmatur

 

·        Nesti útbúið, Kakó á hitabrúsa haft með. Krakkaleikfimi, sippað og snú snú.

 

 

·        Við förum í berjamó niður að Dímon. Kannski finnum við fyrstu vísbendinguna að fjársjóðnum þar ????????????

 

 

·        Nesti borðað, , útileikir.

 

·        Komum til baka, að Kötukoti. Hádegisverður, Allir hjálpast að að ganga frá.

 

·        Opinber Leynifélagsfundur númer tvö. Fjársjóðsleitin rædd, sagan lesin í heild. Bolir til fjársjóðsleitar afhentir. Lögð áhersla á samvinnu !

 

·        Allir græja sig upp fyrir leitina og reynt er að klóra sig út úr byrjunarvísbendingunum

 

·        Alvöru fjársjóðsleit

 

·        Ef fjársjóður finnst ?…. verður honum skipt. Kannski gæti verið nammi í honum líka auk, gull og geimsteina ?

 

·        Allir hjálpast að til að finna eldivið fyrir kvöldvökuna.

 

·        Grillaðir risahamborgarar, farið yfir ævintýri kvöldsins í góðu spjalli. Allir hjálpast að að ganga frá.

·         Allir klæða sig í hlý föt og undirbúa sig fyrir varðeld. Sykurpúðar grillaðir.Sest við bálið og sungið.

·        Ró, háttað, þvegiðog tannburstað sig. Ljós slökkt í Svefnskála leynifélagsins Gullborgar Kveikt á kertum Sögustund fyrir svefninn.

 

 

Sunnudagur

 

·        Morgunmatur, klætt sig

 

·        Frjálsir leikir

 

·        Tekinn saman farangurinn

 

·        Kveðjustund og afhending á heiðurskjali

 

Impra á mikilvægi  þess að vera saman, tala saman, deila jafnt og hjálpast að. Styrkur í að standa saman. Gaman að láta krakkana taka þátt í sem mestu, líka hversdagsverkunum; Ná í timbur, aðstoða við matargerð annað slagið, taka ákvarðanir, móta stefnu leynifélagsins o.fl.þ.h.

 


Fundarboð

Næsti fundur Leynifélagsins verður í Fljótshlíðinni 14. og 15 ágúst næstkomandi. Hlakka til að sjá ykkur öll.

kær kveðja 

Kata


Reglur Gullborgar leynifélags

. 104 Hópurinn kom saman við fundarborðið til að stofna félagið. Allir sættust á nafnið Leynifélagið Gullborg og ákveðið var að semja reglur líkt og í öllum góðum félögum.

Þessar reglur eru eingöngu fyrir félagsmenn og þess vegna urðu reglurnar að koma frá þeim. Öll voru þau sammála um að samvinna og vinátta væri nauðsyn og það virtist skipta miklu máli fyrir þau.

En reglurnar urðu eftirfarandi:

1. Allir eiga að vera góðir við hvorn annan.
2. Það er bannað að keppa, bara samvinna er leyfð. (Sigurður Mikael)
3. Ekki rífast (Freyja)
4. Ekki meiða ( Oddný)
5. Allir eiga að standa saman ( Harpa Dögg)
6. Samvinna, vinátta og ábyrgð ( Sigmar Snær)
7. Allir eiga að deila (Clara)
8. Bannað að hætta í miðjum leik (Fannar Máni)

Að þessu loknu tókust allir í hendur og sögðu einkennisorð félagsins öll í kór
. 105 Einn fyrir alla og allir fyrir einn !

ps: ef krökkunum langar að bæta við reglum er alltaf hægt að senda mér póst.

kveðja

Kata Gísla 


Smá hjálp fyrir lesendur síðunnar

Hef verið spurð af nokkrum hvernig hægt sé að skrifa í athugasemdir. 

Til að skrifa í athugasemdir þarftu að fylla út í ruslpóstvörn, heildartölu þar sem spurt er t.d. Hver er summan af fimm og þremur? 8

(þá leggðu saman 5+3=8)

 


Slitur úr Dagbók Krulla í tengslum við fjársjóðinn

leynifelagid 028 Þegar Indiana var að grafa fyrir undirstöðum kofans sem að hún smíðaði, fann hún slitur úr bók sem virtist mjög gömul. Þetta stóð í henni..... 

 

Dagbók  Krulla 7. mars 1962

 

Fyrir 5 dögum sigldi áhöfn Gullborgar framhjá tötralegu skipi sem virtist yfirgefið.

 

Binni skipstjórinn okkar sendi mig og Nonna langa og Munda skögultönn að kanna hvort einhver væri um borð og ef svo væri, hvort þeir þyrftu hjálp eða kannski bara matarbita.

 

pirate treasure map Við þrír félagarnir fórum um borð í skipið og svipuðumst um. Þar var skrítin lykt en ekki nokkurn mann að sjá og allt í drasli. Skyndilega heyrðum við hávær hljóð sem við áttuðum okkur ekki á hvað væri. Við gengum á hljóðið, langt niður í klefa. Hljóðið magnaðist. Við reyndum að opna klefann sem var örugglega skipstjóraklefinn. Hann var læstur svo við þurftum að brjóta hurðina upp með kúbeini. Hávaðinn inní klefanum var ærandi.

 

Þegar við kveiktum á gaslampanum  sáum við hvaðan öll lætin komu. Á skrifborðinu var risastórt búr úr járni. Inní því var óvenju stór og tígulegur haförn sem þó virtist banhungraður. Haförnin þagnaði um leið og hann sá okkur og mændi á okkur viturlega.

Þegar við lýstum upp restina af herberginu sáum við þrjá litla kistla. Í kistlunum voru dýrindis eðalsteinar, óslípaðir demantar og skartgripir úr skíragulli og einhver ósköp af sælgæti. Við ákváðum að skipta fengnum á milli okkar, hafa þetta sem algjört leyndarmál. Hver okkar fékk einn kistil. Við földum þá inná okkur og lofuðum að segja engum frá, ekki einu sinni Binna skipstjóra. Hver kistill var svo verðmætur að við gætum lifað eins og kóngar það sem eftir væri.

Þegar við félagarnir lönduðum við ströndina í Þorlákshöfn fengum við lánaða hesta og riðum undir eins austur í þeim tilgangi að fela fjársjóðinn.Við vorum lengi á leiðinni og lentum í vondum veðrum og svo mikilli þoku að við urðum viðskila hvor við annan. Ég reið með minn kistil framhjá Stóra Dímon, meðfram Markárfljóti þar til ég sá undurfagra fjallshlíð. Ég nam staðar og gróf kistillinn væna hægra megin við litla á. Fáir virtust búa í kring og því fannst mér felustaðurinn fullkominn.

Ég dreifði vísbendingum um svæðið til að hægt væri að finna hvar fjársjóðurinn væri grafinn. Ég faldi einn miðann í lokinu á gömlum mjólkurbrúsa.

 

Ef ég verð ekki búinn að sækja fjársjóðinn fyrir árið 2000 þá vil ég að þeir sem hann finni noti hann í góðum tilgangi og minnist áhafnarinnar á Gullborginni. Mér þykir leitt að hafa verið svona gráðugur að hafa ætlað að eiga þetta aleinn en ég hef bara aldrei prófað að vera ríkur. Ég gerði vísbendingarnar þannig að einungis hópur af einstaklingum sem eru hjartahreinir, dugmiklir og hugrakkir geti unnið þetta verk í sameiningu.

Nú er ég orðinn þreyttur í höndinni á því að skrifa svona mikið. Góða nótt dagbók.

Krulli.

 

Ps. Gleymdi að skrifa Binni skipstjóri hjúkraði haferninum og gaf honum matarkex bleytt í kaffi. Hann braggaðist vel og var sleppt skömmu síðar. Bless!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband